Hæhæ og halló... Það er víst orðið örlítið langt síðan síðast.. Hér
kemur stutt summary af því sem að ég er búin að vera að gera uppá
síðkastið...
Það er náttúrulega vinnan sem að kemur númer eitt, tvö og þrjú...
Er að vinna með svo æðislegu fólki að það er eiginlega ekki
sniðugt.. En að vísu eru nottla alltaf svartir sauðir inná milli
svona eins og ein kellingin sem var næstum því búin að láta mig fá
taugaáfall af reiði einn föstudaginn... ég meina konan var búin að
vera á sömu vélinni í 5 vikur og hún kunni minna en ég þegar að ég
var búin að vera á vélinni í klukkutíma þetta á að vera
bannað


Eina helgina í september skelltum við okkur nokkur saman í
sumarbústað á Kirkjubæjarklaustri og þegar við mættum á svæðið hélt
ég að það myndi líða yfir mig... Tók ekki á móti okkur SVAÐALEGUR
bústaður, stór, flottur með flottum heitum potti og þetta var bara
frábært... Sennilega eitt stærsta gasgrill sem ég hef á ævinni séð
í notkun...Ég, Gréta, Erla, Lórey, Nína og Rafá skelltum okkur á
réttarball á Klaustri með rosa góðri svona noname hljómsveit þannig
að það var bara fínt...
Björgunarsveitin er loksins byrjuð aftur og verður þetta sennilega
eitt skrýtnasta ár sveitarinnar frá upphafi vegna þess að við
þurfum að fara að skipuleggja allt um nýja húsið, hvað viljum við
fá í nýja húsið, hvernig verður því raðað inní plássið okkar... En
Lórey fær pönnukökupönnuna sína!!

Hún ætlar að standa sveitt
fyrir hvern einasta fund og baka pönnsur handa okkur hinum!!

Ég
meina einhver verður að vera góður við okkur!!

Og hver getur
hugsað sér betri manneskju í það en Lórey? Nei ég bara spyr!?!?
Djammið er stundað eins og vanalega og ég fór til dæmis núna á
laugardagskvöldið á svokallað bjórkvöld hjá vinnunni... Það var
gleraugnaþema og keppni og svaka gaman, ég og Nína bjuggum okkur
til gleraugu úr frauðplastbökkum og vorum við náttúrulega
laaaaaaaaang flottastar þó svo að ég hafi bara fengið þriðju
verðlaun og greyið Nína ekki neitt!

Það gengur bara betur næst
Nína mín!!

Það var annars geggjað skemmtilegt á þessu
bjórkvöldi... ég er alltaf að komast að því betur og betur hvað ég
þekki orðið marga í þessu fyrirtæki... Þekki náttúrulega
bílstjórana mína og alla jógúrtdeildina og smá part af
smjörpökkuninni, g-vörunni og nokkra aðra úr hinum deildunum líka!!
En jæja ætti ég ekki bara að fara að hætta þessu í bili? Ég held
það..
Bless, takk... Ekkert snakk!!